Heilsuhonnun.is er vefur þar sem þjónustu fyrirtækisins er miðlað og ýmsu efni er varðar heilsu og lífsstíl. Efnið á síðunni er til innblásturs og valdeflingar fyrir fólk til að meðtaka og nýta sér á á eigin ábyrgð og út frá eigin heilsu og aðstæðum. Við bjóðum bæði upp á einstaklingsmiðaða þjónustu og hópnámskeið, bæði á netinu og staðbundin.
Inngangur
Í þessari persónuverndarstefnu skýrum við út, hvernig Heilsuhönnun vinnur með og notar persónugreinanlegar upplýsingar sem við gætum safnað í tengslum við starfsemi okkar og heimsókn þína á vefsíðuna og starfsemi sem tengist Heilsuhönnun ehf. og þau réttindi sem einstaklingar hafa á grundvelli persónuverndarlaga. Við hjá Heilsuhönnun leggjum okkur fram við að tryggja öryggi þeirra og fylgjum lögum um persónuvernd.
Hvað eru persónuupplýsingar?
Persónuupplýsingar eru hvers kyns upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til einstaklings. Þegar við segjum “persónulegar upplýsingar” þá þýðir það, hverjar þær upplýsingar sem geta verið nýttar til þess að bera kennsl á einstakling. Þessi persónuverndarstefna á þar með ekki við um ópersónugreinanlegar upplýsingar.
Tegundir persónuupplýsinga sem unnið er með
Við vinnum með ýmsar tegundir persónuupplýsinga í tengslum við starfsemi okkar. Sem dæmi má nefna; nöfn, kennitölur, heimilisföng, símanúmer, tölvupósta og aðrar samskiptaupplýsingar.
Við gætum geymt eftirfarandi tegundir af persónulegum upplýsingum sem tengjast þér:
Tenglar frá þriðja aðila
Vefsíður okkar gætu innihaldið hlekki frá vefsíðu þriðja aðila, tengiforriti, eða hugbúnaði. Með því að ýta á þessa hlekki eða að leyfa þessar tengingar, gætir þú gefið þriðja aðila leyfi til þess að safna og deila gögnum um þig. Við stjórnum ekki vefsíðum þessa þriðja aðila og erum ekki ábyrg fyrir þeirra persónuverndarstefnu. Þegar þú yfirgefur vefsíðu okkar, hvetjum við þig til þess að lesa persónuverndarstefnu þeirrar síðu sem þú heimsækir næst.
Réttur einstaklinga
Einstaklingur á rétt á að að fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar eru unnar um hann innan þeirra marka og með þeim takmörkunum sem persónuverndarlög tilgreina, auk þess sem persónuverndarlög veita skráðum einstaklingum margháttuð réttindi sem varða meðferð á persónuupplýsingum um þá. Einnig eiga þátttakendur sem veitt hafa upplýst samþykki rétt á að draga til baka samþykki hvenær sem er og án sérstakra skýringa og verður þá persónuupplýsingum um þá eytt. Þá hefur einstaklingur rétt á að leggja fram kvörtun til Persónuverndar ef þeir telja að ekki hafi verið fylgt ákvæðum persónuverndarlaga um meðferð á persónuupplýsingum. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Persónuverndar, personuvernd.is.
Breytingar á persónuverndarstefnu Heilsuhönnunar
Heilsuhönnun getur breytt þessari persónuverndarstefnu og bætt við hana hvenær sem er og taka slíkar breytingar gildi án fyrirvara. Slíkar breytingar kunna t.d. að vera gerðar til að samræma persónuverndarstefnuna við gildandi lög og reglur er varða persónuvernd hverju sinni. Allar breytingar á stefnunni verða birtar á þessari síðu.
Síðast uppfært: 4. október 2024